Sissa litla tjáir sig
Dagsetning
22. mars 2010
Gamla bloggið
Hér versla ég
31.05.2007 23:44:13 / sissa

Ennþá....

löt en ég ætla að reyna....

Síðan síðast hefur ýmsilegt gerst, og er ég að spá í að taka punktana á þetta...

  • Prófin fóru svona lala, eins og þið hafið kannski orðið vör við. Eftir þau tók við mikil bið eftir einkunnunum, í von og óvon um það hvort maður hafi nú náð. Ég ákvað svo bara að vera ánægð með allt yfir fimm, þ.e. ef ég næði yrði allt annað plús.
  • Próflokadjammið var frábært, mætingin alveg mögnuð.
  • Næst á eftir því djammi, var annað "djamm". Eurovision partý hjá Lisu. Þar var líka frábært, Lisa stendur sig í stykkinu. Spurningakeppni aftur, og í þetta skiptið var ekki jafntefli, stelpann vann með einni spurningu. (Já, ég man gagnslausar staðreyndir...)
  • Á mánudeginum eftir Eurovision byrjaði stelpan svo í sumarvinnunni, á póstinum þar sem ég fylli tíunda starfsárið 1. júní 2007. S.s. á morgun. Þar er ég búin að vinna sem sagt með skóla og annarri vinnu, já og eitt og hálft ár í fullu starfi, síðan ég var að verða átján ára...
  • Á þriðjudeginum voru Josh Groban tónleikarnir. Stelpan varð ástfangin. Þetta var æðislegt kvöld, og til að toppa það algjörlega, var spilað í "hléi" Kashmir með Led Zeppelin instrumental á fiðlu. Ég fæ ennþá gæsahúð bara við tilhugsunina. Ef ég hefði getað það, þá hefði ég skellt mér á miðvikudagstónleikana líka, þetta var svo æðisgengið. Ef hann kemur einhvern tíman aftur, mun ég hiklaust fara, þó svo ég þurfi að fara ein. Takk, Anna Kristjana, fyrir að hafa slegið til :D
  • Þessa fyrstu viku mína í sumarvinnunni, reiknast mér að ég hafi unnið á fjórum virkum dögum heilar 39 klukkustundir. Ekki slæmt það.
  • Síðan þá hef ég mest megnis bara unnið, skellti mér þó í sumarbústað um hvítasunnuna, og hafði það mjög gott. Las bók og slappaði af, fór í heita pottinn og lá í leti.
  • Í kvöld var þó saumaklúbbur, og enduðum við hann á því að fara í smá göngutúr. Enduðum á leiksvæði hjá nálægum skóla, og fórum að fíflast þar, tengdumst barninu inni í okkur og óskuðum þess að svona leiktæki hefðu verið á skólalóðum þegar við vorum krakkar. Þar var ogguponsupínu klifurveggur, ýmis jafnvægistæki og svo heljarinnar netaróla, ja svona nokkurnveginn, netið var úr gúmmíi og keðjum. Enduðum við göngutúrinn í rólunni, ein í einu og hlógum okkur máttlausar. Það var svo gaman.
  • Svo í lokin, þá náði ég öllum þremur kúrsunum mínum, með fimmu, sexu og sjöu. Fimman kom til vegna áhugaleysis, mig var farið að gruna að kennarinn hefði skellt fimmunni inn svo hann þyrfti ekki að gera neitt meira í tengslum við þann áfanga. Sexan hækkaði mig upp um hálfan í Am. bókmenntum, sem var markmiðið, þ.e. að hækka upp. Hefði viljað meiri hækkun, en bjóst svo sem ekki við miklu sökum hors og hnerra. Sjöan kom mér svo reglulega á óvart, þar sem mér fannst skrifin mín í því prófinu ekkert til að hrópa húrra fyrir.

Næst á dagskrá, ættarmót, útskrift (ekki mín :S ), brúðkaup (ekki mitt heldur ;) ) og annað ættarmót bara stærra. Svo bara vinna, vinna og aftur vinna. Vonandi næ ég einni eða tveimur útilegum í sumar, en það verður bara að koma í ljós, aldrei að vita nema maður skelli sér svo nokkrum sinnum í bústaðinn.....

 

Jæja, lengra verður þetta ekki í bili, og ég veit ekki hvenær ég á eftir að nenna næst. Vinn nefnilega við tölvu, og er ekki alltaf að nenna að skella mér á netið þegar ég kem heim...

En þangað til næst,
Lifið heil....


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 15:04:35 / sissa

Bloggleti

Jábbs, smá bloggleti í gangi hér, en ég er á lífi og mun blogga betur eftir smá...

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 00:42:45 / sissa

Skrýtið

Já, prófið gekk svona lala, og ritgerðin reyndist ekkert sérlega löng í lokin, en ég var algjörlega stífluð í ritkirtlinum..

Og stífluð annars staðar líka, en stelpan er með prófkvef. Já, prófkvef. Síðustu fjórar vorprófatarnir hef ég verið með kvef, sem væri kannski ekki svo slæmt fyrir utan það að á þeim tíma er maður að brasa við það að lesa í gegnum tárvot augu, sírennsli úr nefi og fruss á bækurnar (kannski aðeins of mikið að segja það, en það er svo rosalega gaman að reyna að finna út hvar á blaðsíðunni maður var áður en maður hnerraði fimm sinnum í röð án þess að anda...).

En þessi færsla á ekki að snúast upp í kvart. Það er nefnilega eitt sniðugt (eða ekki) sem gerist þegar stelpan verður pínu slöpp. Allt sem ég reyni að elda mistekst. Já, ég sagði allt. Ég hef reynt að rista brauð, ýmist skaðbrennur það eða kemur vatnssósa (fór frosið beint úr frystinum ofan í ristina) upp úr brauðristinni, og það án þess að fiktað sé í stillingunni!!!!
Eitt skiptið reyndi ég að gera hafragraut, já hafragraut, og hann mistókst 8|  Hvernig er hægt að klúðra hafragraut?? Ég bara spyr. Eftir þrjár tilraunir gafst ég upp og ætlaði að rista brauð og fékk fyrrnefndan árangur. Og, já, þetta er bara þetta auðvelda. Með svona árangur á bakinu reyni ég ekki einu sinni eitthvað flóknara....
Þannig að undanfarna daga, hefur stelpan ýmist lifað á jógúrti og ófrosnu, óristuðu brauði, eða hringt og fengið eitthvað sent heim, sem er ekki það besta sem hægt er að borða í prófatíð....

En já, mér finnst það frekar furðulegt að eldhúshæfileikar mínir hverfi eins og dögg fyrir sólu. 

Jæja, lengra verður þetta ekki í bili, seinna prófið á mánudag, og mín ætlar að rúlla því upp :D 


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 01:09:21 / sissa

Próf

Próf eftir rúman hálfan sólarhring, og ég ligg í bólinu og er að skrifa ritgerð sem á að skilast við upphaf prófs..... Búin að vera að í rúman klukkutíma og komin með rúmlega 1/5 af ritgerðinni, ekki slæmt það. Þá er bara að vona að ég verði jafnfljót með hina 4/5 sem eftir eru, og að ég fái smá lúr áður en ég þarf að vakna aftur og hrista kvefið úr kollinum áður en prófið byrjar....

 

Wish me luck.... 


» 0 hafa sagt sína skoðun