Sissa litla tjáir sig
Dagsetning
8. febrúar 2012
Gamla bloggið
Hér versla ég
30.01.2008 12:38:24 / sissa

flutningur

Er að flytja mig aftur um set - í náinni framtíð verð ég hér. Vonandi getið þið fyrirgefið flakkið.... :D

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 00:19:21 / sissa

oh

var búin að skrifa æðislega færslu en þá klikkað central á mig, aldrei þessu vant tók ég ekki afrit af henni

skrifa hana aftur á morgun, þegar ég nenni því, eftir bestu getu


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 12:33:27 / sissa

Ég er búin ......

 

 

 

.... að taka frá sunnudagskvöldið 3. feb.

 

Hver er með??? 


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 12:16:21 / sissa

Ekki spurning hvort

heldur hvenær ég flyt héðan!!!!!!!

 

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/01/16/vopnadir_menn_redust_inn_i_fjolbylishus/
og
http://visir.is/article/20080116/FRETTIR01/80116029

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 20:26:03 / sissa

Frænkugull

Já, hún er ekki alveg orðin eins árs, litla snúllan hún frænka mín, en ég má til með að monta mig aðeins af henni. Ja, kannski ekki monta, en svona segja smá frá henni.

Þannig er málið, að þau systkinin voru í pössun hjá mömmu og pabba á laugardag og fram á sunnudag. Þegar ég fer í mat til þeirra á laugardagskvöldinu, þá tók mamma á móti mér með lillu í fanginu. Hún brosir út að eyrum þegar hún sér mig. Ég dríf mig úr úlpunni og skónum og spyr hana svo hvort hún vilji ekki koma til mín (þ.e. rétti út handleggina og spyr "Viltu koma?";). Og hvað gerir snúllan????

Hún hristir hausinn frá hægri til vinstri(neineineinei), glottir svo, og svo kemur það allra nýjasta, að klappa saman höndum...

Hvað getur maður gert annað en að hlæja þegar maður fær svona móttökur. Ég ákvað að testa hana aðeins, og spurði hana aftur hvort hún vildi koma til mín... Aftur fékk ég sama "svarið" ef svo má kalla, "neineineinei", glott og svo klapp. Þetta gerði hún trekk í trekk allt kvöldið. 

Nú, svo þurfti mamma að leggja hana frá sér, þar sem hún var að elda, en þar sem lilla var í "haltu-á-mér" stuði, þá ákvað ég að hjálpa aðeins til og taka hana upp. Nei, nei, þá tekur hún bara út úr sér snuðið og frussar, og meira glott og svo snuðið aftur upp í sig.

Ef það er eitthvað sem hægt er að segja um frænkugullið er það að hún er mjög glaðlynd, algjör spaugari og prakkari, alveg eins og bræður hennar og pabbi (jú og mamman líka, hún á sínar stundir).

Þá er frænkumontinu lokið, lifið heil


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 00:01:04 / sissa

Kominn tími á smá

Já, er það ekki. Kominn tími á smá færslu? Rétti upp hönd sem finnst það....

Byrjum á byrjuninni, þar sem ég fór í algjört bloggfrí fyrir jól:

 

Gleðileg jól og gleðilegt ár, vonandi höfðuð þið það gott um hátíðarnar...

 

Ég sendi engin jólakort þetta árið, en fékk nokkur og öll voru þau með myndum. Fyrir næstu jól er ég að spá í að senda út jólakort með mynd af sjálfri mér, svona til að vinir og frændfólk viti hvernig ég lít út, eða hvað finnst ykkur? Annars hafði ég það of gott um jól og áramót, borðaði yfir mig, og naut tímans með fjölskyldu og vinum, fékk fullt af flottum og sniðugum jólagjöfum og fór ekki í jólaköttinn þetta árið.

Og þá er komið að annál ársins 2007, svona eftir bestu getu:

Janúar
Árið byrjaði á því að tölvan mín krassaði. Fast á herðar þess var svo skóli, vísindaferðir, saumaklúbbur, vinna, tvö afmæli og djamm

Febrúar
Fyrsta stelpan fæddist í náfjölskylduna síðan ég kom í heiminn, skírn, skóli og fleiri vísindaferðir. Mikil kókdrykkja þann 18.febrúar á háskólakynningu, meiri vinna og fleiri saumó, og djamm

Mars
Árshátíð enskunnar, rosastuð, málsháttur sem átti vel við stelpuna (“Betra er autt rúm en illa skipað”, ekki það að ég sé að stefna að því að hafa rúmið autt). Mömmó fyrir skírn litlu frænku, bæði hjá systur og bróðir mínum (jebbs, babysitter extra-ordinaire), skóli og vinna og vísindaferðir. Sumarbústaðarferðin góða, þar sem mín fór Krísuvíkurleiðna á Laugarvatn og kom aðeins við á Flúðum, og sú sightseeing ferð farin í þoku.

Apríl
Páskarnir með bústaðarferð í familíubústaðinn, skóli, vinna og saumaklúbbur, síðasta vísindaferðin sem ég stóð að ásamt restinni af BOG-stjórninni, síðustu dagarnar fram undan sem stjórnarmeðlimur, tvö afmæli og síðast en ekki síst: prófundirbúningur :S

Maí
Prófin og prófkvefið góða héldust enn eina ferðina hönd í hönd, ritgerð skrifuð á 8 tímum og enn og aftur einn heill í einkunn fyrir hvern klukkutíma sem nýttur var í að skrifa ritgerðina (ánægð með það, en ekki löng ritgerð;). Próflokadjamm, Eurovision party, sumarvinnan byrjaði, Josh Groban tónleikar (þeir voru algjört æði), sumarbústaður.

Júní
Júnímánuður einkenndist af hellings böggi. En fyrir utan það, þá var farið í afmæli, tvær útskriftarveislur sama daginn, vinkona mín var gæsuð og sömu nótt var ráðist á nágranna minn, ég talaði við rannsóknalögreglumann í algerri þynnku (og nývöknuð;), vann eins og brjálæðingur í öllu sólskininu sem var í júní. Og síðast en ekki síst – saumógöngutúrar og fíflerí

Júlí
Brúðkaup 07.07.07 – boðið í eitt – þekkti ein sex pör sem giftu sig þann daginn. Ofursaumógöngutúr í góðu kvöldveðri sem varð til þess að mig langaði til að krúnuraka mig, og svo að sjálfsögðu vinna og meiri vinna. Ein tjaldútilega í grenjandi rigningu eiginlega allan tímann, ákvörðun tekin um að taka ekki sumarprófið sem ég átti að taka.

Ágúst
Ekkert bloggað þann mánuðinn, en verslunarmannahelgina var ég að vinna og brunaði svo í bústaðinn eftir vinnu á laugardeginum. Afmælið mitt kom og var deginum eytt í bústaðnum með stórum hluta fjölskyldunnar, góður matur og mikil pottlega, ákvað að taka mér viku sumarfrí í vinnunni, enda orðið gott, gekk 3km í Reykjavíkurmaraþoninu og svo enn og aftur beint upp í bústað. Svo tók við leiðinlegur tími hjá stelpunni, fyrst byrjaði bíllinn minn að stríða mér, þurfti á verkstæði, svo brenndi þvottavélin úr sér og hún alveg ónýt og stelpan að ferja þvott á milli heimila og svo kvef. Þar með lauk ágústmánuði og hefði alveg matt klárast fyrr þótt ég segði sjálf frá. Enginn saumó í ágúst vegna útlandadvala tveggja meðlima.

September
Skólinn byrjaði, stelpan ákvað að láta aðalskoða bílinn, og kom í ljós að hann þurfti aftur á verkstæði. Bíllinn á verkstæði og stelpan í strætó á námsmannakortinu. 50þús farinn í verkstæðiskostnað á tveimur vikum. Og ekki er það búið ennþá, því ég var búin að vera á bílnum fínum í þrjá daga, þá bræddi hann hálfpartinn úr sér, eða það hélt ég því hann fylltist af brunafýlu á leiðinni heim úr bíó, ég og fimm ára frændi minn saman. Svo neitaði hann bara að hrökkva í gang seinna um daginn. Djö, beint á verkstæði með bílinn og þar sat hann í tvær vikur, þangað til röðin komst að honum, og ég 60þús fátækari. Annars bara skóli og vinna og saumó, að sjálfsögðu.

Október
Tölvuvesen aftur, bílasölucruise allan mánuðinn, allir bílar sem mér líst á seldir þegar ég kemst í það að hringja á sölurnar. Skólaleiði gerði vart við sig, enda ekki sérlega ánægð með áfangann sem ég var í, Halloween hjá enskunni var svona lala, fjör á heimleiðinni samt. Saumó á TGI Fridays, þar sem var ákveðið að fara til útlanda á nýju ári. Fleiri góðir saumóar.

Nóvember
Ennþá skólaleiði, og við hann bættist svefnvöntun á háu stigi og margar andvökunætur. Frétti að von væri á litlu kríli í fjölskylduna í maí. Litla frænkan byrjar að ganga, 9 og ½ mánaða. Stórinnkaup í Ikea, heilt lak og tveir púðar gera stofuna miklu skemmtilegri (mér finnst það a.m.k.). Pínu bloggleti gerði vart við sig, annars var unnið og saumóast og að sjálfsögðu kíkt í afmæli, þynnka ársins daginn eftir, þar sem allt hringsnerist til klukkan sex. Og síðast en ekki síst, barnapíustörf fyrir stóru sys sem fór til Stuttgart í helgarferð.

Og síðast en ekki síst, Desember
Annað svefnleysistímabil, nokkrir saumóar, ekkert próf, BA-ritgerðinn frestað enn eina ferðina (skömmust), utanlandsferðin pöntuð, New York here I come!! Var sagt kynið á litla krílinu sem á að koma í maí, það er önnur stelpa sem er snilld. Fokk í innra-eyra, sem lagaðist á tveimur og hálfum degi, alls ekki gaman, Ruby Tuesday heimsókn með stelpunum. Jólatrésskreyting sem misheppnaðist aðeins, og tók heila þrjá daga, og nágrannar sem negla nagla ýmist klukkan eitt um nótt eða sex um morgun, ekki vinsælt. Og svo að sjálfsögðu, góð og gleðileg jól og góð, gleðileg og skemmtileg áramót.

Það sem af er janúar er mín bara búin að vera í afslöppun, vinna þrisvar, bóka eitt hotel, fara einu sinni í bíó, á mynd með besta soundtrackið í langan tíma, Bob Marley sjálfan. Jæja, þetta er orðið gott, rúmlega 1000 orð skv teljaranum í wordinu hjá mér, eða 1021 orð nákvæmlega.

Vonandi nutuð þið vel,
Heyrumst síðar :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.12.2007 18:20:38 / sissa

Gæsahúð

Mér var sögð eftirfarandi frásögn í dag í vinnunni og á meðan hún var sögð fékk ég gæsahúð aldarinnar...

Ung kona í Danmörku fór með fjögurra ára gamlan son sinn að kaupa jólatré nýlega. Þar sem jólatrén voru seld máttu börn skrifa ósk sína á blað og svo yrði dregið úr ósk sem myndi svo verða rætt. Litli strákurinn var spurður hvers hann óskaði sér um jólin og hann sagði: "Vera með afa um jólin". Þau mæðginin eru nefnilega nýflutt til Danmerkur og höfðu ekki efni á að fara til Íslands um jólin til að vera með afa og ömmu. 

Svo nokkrum dögum seinna var hringt í mömmuna frá útvarpsstöðinni sem sá um óska"leikinn". Þá hafði þeim fundist óskin svo mögnuð að þeir vildu láta hana rætast fyrir litla strákinn, hann hefði verið sá eini sem ekki óskaði sér bíls eða lestar eða einhvers dóts. Eftir langt símtal spurði mamman þá útvarpsmennina hvort það væri einhver séns að þau myndu fljúga í staðinn til Íslands, til ömmu og afa, þar sem hún ætti bróður sem er líka í námi í Danmörku og að hann væri nýfarinn til Íslands til að eyða jólunum með foreldrum sínum. Útvarpsmennirnir þurftu nú aðeins að tékka, og hringdu svo fljótlega aftur í hana. Og jú, það var sko hægt, því það væri nú frekar leiðinlegt að láta ósk barnsins rætast en skilja svo son ömmunnar og afans eftir einan um jólin á Íslandi. Þannig að þau mæðgin eru á leiðinni og fá að eyða jólunum með fjölskyldunni, allt af því litli strákurinn var svona svakalega einlægur.

Það eru nefnilega ekki efnislegu hlutirnir sem skipta máli, heldur er það að eyða tímanum með fjölskyldunni, og mér finnst það alveg magnað að þessi litli drengur skuli kunna það, ekki eldri en fjögurra ára....


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 00:36:44 / sissa

Er ekki í lagi með fólk???

Ég bara spyr....

Í þessum töluðu orðum er verið að negla og hamast á einhverju járndóti einhvers staðar hinum megin við vegginn hjá mér, og ekki bara einhvern vegg, heldur SVEFNHERBERGISVEGGINN!!!!! Klukkan hálf eitt!!!!! Ég fæ móral ef ég er að þvo þvott í kringum miðnætti af illri nauðsyn.... 

Ég er reyndar ekki alveg sofnuð strax, en kommon, þetta slær við hamarshöggunum klukkan sex að morgni til... Fingers x-ed að hann haldi ekk mikið lengur áfram.... 


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 17:00:51 / sissa

Sex dagar til jóla

Jábbs, það eru víst bara sex dagar til jóla. Mikið svakalega hefur tíminn liðið hratt síðasta árið. Hann hefur liðið svo hratt að ég var að fresta ritgerðinni minni enn eina ferðina, núna held ég að mér takist þetta, það er alla vega markmiðið, ég ætla ekki að vera eilífðarstúdent, óneihósei.

Annars er allt gott að frétta, þessi truflun í eyranum á mér leystist án vandræða á tveimur dögum, en í kjölfarið komu tveir dagar þar sem stelpan var bryðjandi verkjartöflur hægri/vinstri. En það var allt í gúddí, fyrst þetta lagaðist allt saman.

Ég er að hugsa um að bæta við titli á sjálfa mig í ferilskránni minni, og hann er "barnapía extraordinaire". Af hverju? Ég held að undanfarið hafi ekki liðið vika þar sem ég hef ekki passað, ýmist fyrir systir mína eða vinkonu, sem er bara snilld, gaman að geta hjálpað fólki þegar það þarf á því að halda. Ég verð komin með brjálaða æfingu þegar ég tek mig loksins til :D :D:lol::haha:

Annars er ekkert að frétta, nema það að tilraun mín til að skreyta jólatréð mitt í gærkvöldi fór algjörlega út um þúfur, vantar smotterí til að geta klárað það, ein ferð í Blómaval og málið er dautt :D Svona leit tréð einmitt út í gærkvöldi þegar ég fór að sofa.... Sem sagt, algjörlega mis....

Jæja, lengra verður þetta ekki í bili, endilega hlægið smá með mér yfir fína jólatrénu....


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 00:33:26 / sissa

Læknirinn sagði

Jebbs, læknirinn kom með stutta og einfalda greiningu.....  og hún var einhvern veginn svona:

Góðkynja jafnvægisröskun í innra eyra 8|

Og hvað getur stelpan gert til að laga það??? Nokkrar æfingar sem hann benti mér á á netinu. Það gæti tekið allt upp í viku, jafnvel lengri tíma. Svo þarf mín líka að sofa í 45° stellingu, sem er ekki alveg nógu gott því ég sofna alltaf á maganum :S Úbbs... En gott að þetta var ekki verra, a.m.k. eins og staðan er í dag.. Verð bara að passa mig að hreyfa mig ekki ört, því þá kemur sviminn og ógleðin aftur...

En jámm, fleira var það ekki, sem sagt ekkert alvarlegt, bara óþægilegt 


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 14:11:22 / sissa

Hræðilega óþægilegt

Í gærmorgun vaknaði ég og settist upp, sem er ekkert merkilegt, nema það að herbergið hringsnerist og mér var alveg hræðilega óglatt. Ég lagðist aftur niður og svaf lengur, vaknaði aftur og ennþá hringsnerist herbergið. Þannig var allur gærdagurinn hjá mér, alveg fram yfir kvöldmat. Í hvert skipti sem ég stóð upp langaði mig helst til að leggjast aftur niður, því allt hringsnerist.

Ég náði nú samt að hrista þetta af mér í nógu langan tíma til að fara á Ruby Tuesday með stelpunum. Sem betur fer var ég sótt, því ég treysti mér ekki alveg á bak við stýrið :S Svo þegar ég vaknaði í morgun, þá var ég alveg eins, allt í lagi meðan ég ligg kyrr, en um leið og ég fer að hreyfa mig eitthvað, þá byrjar mig að svima svona rosalega og verður hræðilega óglatt. Treysti mér ekki í vinnu í kvöld, enda ekkert sniðugt að vera innan um fullt af húsgögnum og járnhlutum (grindum, bökkum o.þ.h.) þegar mann svimar svona. Ákvað svo að hringja í fyrirtækið sem sér um heilsuverndina hjá vinnunni, og lýsti þessu. Þar var mér að sjálfsögðu bent á að hringja í heimilislækninn minn, sem ég er einmitt að fara að hitta á eftir. Vona bara að þetta sé ekkert alvarlegt... 8|:^):frown:  Fingers crossed.... Þetta er nefnilega alveg hræðilega óþægilegt. Það skiptir engu hvort ég borða eða ekki, það er alveg sami sviminn....

En Ruby í gærkvöldi, var alveg magnað. Borðuðum á okkur gat, hvernig er annað ekki hægt??? Við hlógum mikið og spjölluðum meira, alveg þangað til starfsfólkið var farið að setja stólana upp á borðin, það var okkar que um að fara, þó svo að það væri ennþá kortér í lokun... Hvað er það með fólk að vilja fara fyrr heim.... Við lentum líka í svipuðu á Friday's um daginn, nema þá var fleira fólk inni á staðnum.

En jæja, best að halda áfram að læra, sjáum svo til hvað læknirinn segir á eftir 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 14:28:43 / sissa

It's alive!!!!

It's alive! It's aliiiiiveeeee!

Jebbs langt síðan síðast, og ég er alveg við það að ná þessu á hreint. Þó nokkrar andvaka nætur hafa þó dottið inn í, ein á föstudagskvöldi fyrir vinnu á laugardagsmorgni.. Úff, ekki gott, en ég hélt mér vakandi til sjö um kvöldið og reitti af mér svefngalsabrandara í vinnunni.

En, anywho, síðan síðast er ekkert merkilegt búið að gerast, bara vinna, skóli (ja, eða ekki, þar sem tímarnir voru klukkan átta á morgnana og ég var ekki alveg á því að vakna, þökk sé fyrri færslunni). Jú, svo erum við stelpurnar búnar að stelpast alveg heilmikið, jú og eitt afmæli, þar sem ég endaði á að rúlla heim neðan úr bæ, ja, rúlla og rúlla. Ég ákvað að stinga af þegar Hressó var farinn að snúast í hringi, og steig ekki fram úr bóli fyrr en um sex leytið daginn eftir, þá fyrst hættu gólfið og loftið að snúast.

Næst er það bara að klára tvær ritgerðir, og það sem fyrst. Meðfram því er að finna decent framtíðarstarf sem borgar sæmilega vel, þar sem ég þarf ekki að vera of mikið í framlínu, og síðast en ekki síst safna gjaldeyri fyrir "kvennaorlof" okkar vinkvennanna. Tilhlökkunin er farin að gera vart við sig, það er jú alltaf gott að hafa eitthvað til að hlakka til. Svo á ég náttúrulega séns á að fara í tvö önnur ferðalög á næsta ári :D Jesssss, hver vill koma með???

Ég var í mömmó núna fyrir helgi. Systir mín og mágur fóru til Stuttgart í jólahelgarferð og vorum ég og foreldrar mínir í barnapíustörfum. Ég fór til systur minnar eftir vinnu á miðvikudag og gisti þar næstu tvær nætur. Var svo með litlu snúllu yfir daginn þangað til ég þurfti að fara í vinnu. Fimmtudagskvöldið í vinnunni var svo hræðilega erfitt, stelpan vansvefta og búin að svæfa vinstri öxlina með því að halda á snúllunni OG með því að sofa asnalega á henni um nóttina. Föstudagurinn gekk svo sæmilega, þar sem snúllan var mjög ergileg, þar sem hún var að fá tvær tennur, sú fyrri kom reyndar niður á fimmtudeginum og sú seinni í gær. Þvílíkar framfarir hjá henni á einni helgi, byrjaði að vinka, hoppa á miðju gólfi án þess að halda sér í, fara fram úr hjónarúminu og sófanum, og næstum því farin að standa upp á miðju gólfi án þess að halda sér í. OG allt viku áður en hún verður tíu mánaða. Hún fylgdi alveg í kjölfarið á bræðrum sínum og var að sjálfsögðu farin að ganga út um allt áður en hún náði ellefu mánuðunum. Ég sagði það strax þegar við sáum hvað hún var stíf að hún yrði farin að ganga út um allt vel fyrir jól, og það stóðst... Sissa klár.

Jæja, þetta ætti að dekka þögnina sem var, veit samt ekki hvenær ég kem með meira, við verðum bara að sjá til.....

P.s. Silja, vonandi var þetta nóg í bili :D Hehehe 


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 04:24:42 / sissa

Skrýtnar svefnvenjur

Já, þessi færsla ber sko nafn með rentu, því að nóttinni í nótt meðtalinni, þá eru komnar fimm nætur þar sem ég hef legið andvaka og ekki sofnað fyrr en undir morgun. Til að bæta gráu ofan á svart, þá er ég heldur ekki að sofa upp í æskilegan tímafjölda yfir daginn. Ástæðan fyrir því að ég skrifa þetta nú er sú að mér finnst þetta furðulegt, ég hef reyndar gengið í gegnum svona tímabil áður, en þau hafa ekki varað svona lengi, og í þetta skiptið er ég búin að reyna nánast allt sem mér dettur í hug til að komast fyrir þetta.

En í öðrum fréttum, litla frænkan er byrjuð að sleppa sér og taka nokkur skref, rétt rúmlega 9 mánaða gömul. Hún ætlar að halda í hefðirnar í sinni fjölskyldu og vera farin að ganga fyrir 10 mánaða afmælið. Hún er svo mikið rassgat. Það er reyndar svolítið síðan að hún fór að geta staðið á miðju gólfinu án þess að halda í nokkuð, sem er frekar fyndið, að setja hana á mitt gólfið, bíða augnablik meðan hún náði jafnvæginu og horfa svo á hana bara standa og glotta. Hún er svo mikill spaugari, í ofanálag við það að vera rassgat, og það er svo gaman að vera nálægt henni (og reyndar allri familíunni, sérstaklega þegar hún er nálægt).

Aldrei datt mér í hug að hvítt lak og tveir púðar gætu breytt miklu, en það gerði það svo sannarlega. Ég var eitthvað að pirra mig yfir sófanum mínum um daginn þegar ég var í IKEA. Fór þangað NB. bara til að kaupa einn hlut á 500 kall, en kom út 9000 krónum fátækari, allt út af þessari hugmynd sem ég fékk í IKEA. Ég gekk nefnilega framhjá svona flottum púðum, og fékk þá svona smá "breytihugmynd". Ákvað að taka tvo púða, og finna mér svo lak til að breiða yfir sófann góða. Til að gera langa sögu stutta, þá lítur sófinn svona assgoti vel út að ég er jafnvel að spá í að kaupa tvö minni lök og skella yfir stólana. Mér finnst þessi bleiki litur sem er á sófasettinu reyndar frekar flottur, en millilagið í sófanum, þ.e. millai pullanna og gormanna er orðið svo tætt að hann gleypir allt í sig blessunin, þannig að mér datt í hug að þessi yfirbreiðslubreyting myndi gera honum og mér gott. Enda finnst mér eins og ég sé með nýjan sófa í nýrri stofu. Það birtir líka svo yfir stofunni við þetta, og kosturinn er sá að ég get skutlað lakinu í þvottavélina eins og ekkert sé :D En ég ætla nú samt að bíða aðeins með næstu lök, svona leyfa kortinu aðeins að kólna fyrir næstu ferð í IKEA.

Jæja, ætla að hafa þetta nóg í bili,

Sweet dreams

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 00:22:18 / sissa

Loxins

Loksins fann ég smá brandara sem mér var sagður fyrir 10 8| árum síðan :S Sjitt, djö**** er orðið langt síðan...

Alla vega, hann er eftirfarandi.. Og N.B. hann var sagður í enskutíma :D Enjoy

 

The European Commission has just announced an agreement whereby English will be the official language of the European Union rather than German, which was the other possibility.

As part of the negotiations, the British Government conceded that English spelling had some room for improvement and has accepted a 5- year phase-in plan that would become known as "Euro-English".

In the first year, "s" will replace the soft "c". Sertainly, this will make the sivil servants jump with joy. The hard "c" will be dropped in favour of "k". This should klear up konfusion, and keyboards have one less letter.  There will be growing publik enthusiasm in the sekond year when the troublesome "ph" will be replaced with "f". This will make words like fotograf 20% shorter.

In the 3rd year, publik akseptanse of the new spelling kan be expekted to reach the stage where  more komplikated changes are possible.

Governments will enkourage the removal of Double letters which have always Ben a deterent to akurate speling.

Also, al wil agre that the horibl mes of the silent "e" in the languag is disgrasful and it should GO away.

By the 4th yer people wil be reseptiv to steps such as replasing "th" with "Z" and "w" with "v".


During ze fifz yer, ze unesesary "o" kan be dropd from vords kontaining "ou" and after ziz fifz yer, ve vil hav a reil sensibl riten styl.

Zer vil be no mor trubl or difikultis and evrivun vil find it ezi tu understand ech oza. Ze drem of a united urop vil finali kum tru.

Und efter ze fifz yer, ve vil al be speking German like zey vunted in ze forst plas.
If zis mad you smil, pleas pas on to oza pepl.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 20:22:53 / sissa

Stutt

Jebbs, loksins, loksins, loksins gekk það.

Loksins fann ég bílinn, og loksins gat ég keypt bílinn.. Jamms, stelpan er komin á nýrri bíl, 2006 módel af Yaris. Júhú!!! :D Eintóm gleði á þessum bæ síðan á fimmtudaginn var :D

Í öðrum fréttum er það að við stelpurnar fórum og stelpukvöldðumst á TGIFriday's á þriðjudaginn var, og þar sem það er allta föstudagur þar, þá skemmtum við okkur mjög vel. Reyndar fengum við illt auga frá einum starfsmanninum, en það var allt í lagi, það var henni sjálfri að kenna að hafa þrifið barinn áður en við fórum :D Hehe

Á Friday's var ákveðið að við stelpurnar ætlum í útskriftarferð eftir útskrift hjá mér í febrúar (þ.e.ef ég næ að útskrifast þá, markmiðið stendur alla vega á útskrift þá;). Þrír staðir koma til greina, og verð ég að segja að mig langar alveg jafn mikið til allra þriggja. Það eru sem sagt "helgarferðir" ýmist til Parísar, Njú Jork eða jafnvel Boston. Og það besta er að ég var, löngu áður en þetta var ákveðið, byrjuð að safna/leggja til hliðar þannig að ég er komin með smá ferðasjóð :D Sem betur fer, því ég er farin að sjá Eurokortið hitna nú þegar:^):haha:;)8|

Svo tókst mér, eftir martröðina síðasta mánudag, að skríða inn í stofuna um það leiti sem yfirsetumanneskjan sagði "Og þið megið byrja". Ég lagði nógu snemma af stað, en fattaði það þegar ég var komin langleiðina niður í skóla að ég hafði gleymt pennaveskinu heima, þannig að ég brunaði í Bóksöluna, og hafði þá tæpar tíu mínútur. Nema hvað að það var stelpa á undan mér á kassanum, sem var pínu vesen hjá, þannig að þegar ég var svo loksins komin í stofuna, þá var klukkan bara orðin :S Úbbs...

Jæja, ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili..

A bientôt


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8